10 hlutir sem eru ómissandi fyrir árshátíðina

Það er skemmtileg helgi framundan hjá mörgum!
Það er skemmtileg helgi framundan hjá mörgum! Samsett mynd

Margir eru á leið á árshátíð um helgina og því ekki seinna vænna að byrja að huga að árshátíðarlúkkinu. Á óskalista vikunnar finnur þú allt það sem þú þarft fyrir árshátíðina, allt frá fallegum kjólum og skóm yfir í hyljara sem endist í allt að sólarhring!

Smáatriði sem heilla!

Það ættu allir að eiga svartan kjól í fataskápnum, enda klassísk og tímalaus flík sem hefur mikið notagildi. Þessi fallegi kjóll er frá Rabens Saloner, en það sem gerir hann extra flottan er sniðið á honum og rennilás á hliðunum. 

Kjóll frá Rabens Saloner fæst hjá Mathilda og kostar 36.990 …
Kjóll frá Rabens Saloner fæst hjá Mathilda og kostar 36.990 kr. Ljósmynd/Mathilda.is

Punkturinn yfir i-ið!

Það skiptir hreinlega ekki máli í hvaða dressi þú ert ef þú ert með þetta glæsilega hálsmen, enda getur þú treyst á að það setji alltaf punktinn yfir i-ið og gefi þennan „wow-factor“ sem gaman er að hafa á árshátíðinni. 

Hálsmen frá Custommade fæst hjá Andrea by Andrea og kostar …
Hálsmen frá Custommade fæst hjá Andrea by Andrea og kostar 18.900 kr. Ljósmynd/Andrea.is

Hyljari sem endist allan sólarhringinn!

Þegar kemur að árshátíðarförðun er mikilvægt að velja góðar snyrtivörur sem endast lengi. All Hours Precise Angles-hyljarinn frá Yves Saint Laurent hylur, mótar og skerpir með silkimjúkri áferð sem endist í allt að 24 klukkustundir. 

All Hours Precise Angles hyljarinn frá Yves Saint Laurent fæst …
All Hours Precise Angles hyljarinn frá Yves Saint Laurent fæst hjá Hagkaup og kostar 6.499 kr. Ljósmynd/Hagkaup.is

Litagleði sem poppar lúkkið upp!

Þú getur poppað hvaða lúkk sem er upp með fallegum skóm sem grípa augað. Þessir fagurgrænu skór eru frá íslenska merkinu Kalda og eru með passlega háum hæl svo þú getir dansað langt fram á nótt!

Hælaskór fást hjá Kalda og kosta 56.900 kr.
Hælaskór fást hjá Kalda og kosta 56.900 kr. Ljósmynd/Kalda.com

Sniðið sem allir eru að missa sig yfir!

Að undanförnu hafa svokallaðir „tube“ kjólar verið að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum, en það sem einkennir slíka kjóla er að þeir eru erma- og hlýralausir. Þessi kjóll er tilvalinn á árshátíðina, en það er sumarlegur blær yfir honum og auðvelt að dressa hann upp eða niður. 

Tube-kjóll fæst hjá Bestseller og kostar 10.990 kr.
Tube-kjóll fæst hjá Bestseller og kostar 10.990 kr. Ljósmynd/Bestseller.is

Þessi klassíski!

Það verða allir að eiga góðan jakka sem hentar fyrir fínni tilefni, en það getur verið erfitt að finna slíkan jakka og nauðsynlegt að hafa veðurfar Íslands í huga við valið. Þú munt ekki sjá eftir að fjárfesta í góðum loðjakka, en hann er fullkominn fyrir fín tilefni og þú getur notað hann allan ársins hring, sama hvernig viðrar!

Dökkgrár loðjakki fæst hjá Feldi og kostar 158.000 kr.
Dökkgrár loðjakki fæst hjá Feldi og kostar 158.000 kr. Ljósmynd/Feldur.is

Töffaralegt lúkk!

Þegar kemur að fatavali fyrir árshátíðina eru engar reglur og algjör misskilningur að það þurfi allir að mæta í síðkjólum og pinnahælum. Það er vel hægt að dressa upp fallegt pils og vesti, en þetta sett frá Zöru er virkilega fallegt með opnu baki. 

Pils og vesti fást hjá Zara, en bæði pilsið og …
Pils og vesti fást hjá Zara, en bæði pilsið og vestið kosta 5.995 kr. eða 11.990 kr. saman. Ljósmynd/Zara.com

Eina varan sem þú þarft!

Hversu vel hljómar það að þurfa bara að taka með sér eina snyrtivöru til að fríska upp á sig í gegnum kvöldið? Þessi vöru er hægt að nota sem augnskugga, eyeliner, kinnalit og ljómavöru!

Idôle Tint frá Lancome fæst hjá Hagkaup og kostar 5.699 …
Idôle Tint frá Lancome fæst hjá Hagkaup og kostar 5.699 kr. Ljósmynd/Hagkaup.is

Taska sem gleður augað!

Þessi fallega taska fullkomnar árshátíðarlúkkið og bætir enn meiri glamúr við dressið, en hún er líka í hæfilegri stærð fyrir kvöldið og tikkar því í ansi mörg box.

Taska fæst hjá Zara og kostar 5.595 kr.
Taska fæst hjá Zara og kostar 5.595 kr. Ljósmynd/Zara.com

Tímalaus fegurð!

Það er alltaf hægt að smella sér í fallega og tímalausa svarta hælaskó, enda passa þeir við allt og fara aldrei úr tísku!

Hælaskór frá Billi Bi fást hjá GS Skóm og kosta …
Hælaskór frá Billi Bi fást hjá GS Skóm og kosta 35.995 kr. Ljósmynd/Ntc.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál