Instagram: „Allt á uppleið!“

Vikan var sólrík og gleðileg á Instagram!
Vikan var sólrík og gleðileg á Instagram! Samsett mynd

Vikan var sannarlega gleðileg og sólrík á Instagram! Sólin lék við landsmenn á sumardaginn fyrsta og var hver sólargeisli nýttur til hins ýtrasta. Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir dekraði við sig í Vök Baths á Austurlandi á meðan förðunarfræðingurinn og hlaupadrottningin Rakel María Hjaltadóttir sólaði sig í Bláa Lóninu.

Allt á uppleið!

Herbert Guðmundsson lýsti hugarfari margra landsmanna þessa vikuna þegar hann birti mynd af sér með tónlistarmanninum Patrik Atlasyni, betur þekktur sem Prettyboitjokko, með yfirskriftinni: „Allt á uppleið!“

Pasta- og pítsaparadís!

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir naut lífsins á Ítalíu þar sem hún heimsótti meðal annars Cómó-vatn, Positano og Róm. 

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

Einkadóttirin eins árs!

Förðunarfræðingurinn Ragnheiður Júlíusdóttir fagnaði því að ofurkrúttið Kaía væri orðin eins árs.

Notalegheit á Austurlandi!

Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir gerði vel við sig og skellti sér í Vök Baths við Urriðavatn á Austurlandi.

Afmælissystur!

Systurnar Laufey Lín Jónsdóttir og Júnía Lín Jónsdóttir fögnuðu 25 ára afmæli sínu í vikunni, en þær voru staddar í Washington í Bandaríkjunum á afmælisdaginn þar sem Laufey hélt tónleika.

View this post on Instagram

A post shared by laufey (@laufey)

Spennt fyrir sumrinu á Tenerife!

Hulda Ósmann er spennt fyrir sumrinu á uppáhaldseyju Íslendinga, Tenerife!

Forsetaframboð?

Var tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör að tilkynna forsetaframboð fyrir árið 2032?

Alvöru afmælispartí!

Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir og knattspyrnumaðurinn Hörður Magnússon tjölduðu öllu til og fögnuðu fjögurra ára afmæli dóttur sinnar, hennar Matteu, með stæl!

Fáklæddir á Esjunni!

Þjálfarinn Guðmundur Emil Jóhannsson skellti sér á Esjuna.

Góð byrjun á sumrinu!

Inga Lind Karlsdóttir, eig­andi Skot Producti­ons, byrjaði sumarið með stæl.

Hamingjusöm í sólinni!

Förðunarfræðingurinn og hlauparinn Rakel María Hjaltadóttir skellti sér í Bláa Lónið í sólinni og getur hreinlega ekki beðið eftir sumrinu!

Magnaður!

Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðsmaður, kafari og göngugarpur, gekk hundrað kílómetra á 48 klukkustundum og safnaði fé fyrir Píeta-samtökin!

 Sólin skein á afmælisbarnið!

Jóhanna Helga Jensdóttir fagnaði 28 ára afmæli sínu á laugardag. 

Kósídagur!

Magnea Björg Jónsdóttir gaf fylgjendum sínum innsýn inn í ljúfan helgardag. 

Sumarsæla!

Bára Jónsdóttir, förðunarfræðingur, fitness- og samfélagsmiðlastjarna, tók á móti sumrinu með bros á vör.

Dró framboð sitt til baka!

Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og fyrrverandi forseti Félags kvenna í atvinnulífinu, dró framboð sitt til Forseta Íslands til baka.

Á ferð og flugi!

Helga Margrét Agnarsdóttir kíkti út fyrir landsteinana!

Sumarið er komið!

Áhrifavaldurinn Sigríður Margrét missti ekki af sumrinu sem kom í síðustu viku. 

Sumarkjóllinn!

Áhrifavaldurinn Sara Jasmín skellti sér í fallegan rauðan sumarkjól. Það er komið sumar og veðrið var með besta móti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál