Sigurjón og Simona gengu í það heilaga

Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité eru orðin hjón!
Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité eru orðin hjón! Samsett mynd

Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité, hlauparar og eigendur UltraForm, gengu í það heilaga við fallega athöfn í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit þann 6. apríl síðastliðinn. Að athöfn lokinni tóku við mikil veisluhöld og ef marka má myndir leiddist engum. 

Það er óhætt að segja að líf hjónanna hverfist um heilsu og hreyfingu, en Sigurjón er í hópi fremstu utanvegahlaupara hér á landi og á síðustu árum hafa þau Simona tekið þátt í fjölda keppnishlaupa um allan heim og bæði náð frábærum árangri.

Kynntust í ræktinni og reka nú líkamsræktarstöð

Sigurjón og Simona kynntust í ræktinni fyrir þó nokkrum árum síðan, en í dag reka þau líkamsræktarstöðina UltaForm saman og eiga eina dóttur, Líf, sem er fimm ára gömul. 

Hjónin birtu um helgina fallegar myndir frá stóra deginum á Instagram-síðu sinni, en það var Sunday & White Weddings sem sá um að taka brúðarmyndirnar.

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál