Kolbrún býður upp á ketó vænan vikumatseðil

Kolbrún Ýr Árnadóttir býður upp á ketóvænan vikumatseðil fyrir alla.
Kolbrún Ýr Árnadóttir býður upp á ketóvænan vikumatseðil fyrir alla. mbl.is/Árni Sæberg

Kol­brún Ýr Árna­dótt­ir býður upp á vikumatseðilinn að þessu sinni sem er ketó vænn alla leið. Kolbrún Ýr stend­ur á bak við síðuna Ketó-þjálfun, þar sem hún deil­ir góðum ráðum og upp­skrift­um. Kolbrún gefur lesendum matarvefsins einnig nokk­ur gull­ráð til að fara eft­ir þenn­an septembermánuð, þegar við þurf­um mest á hvatn­ing­unni að halda.

„Ég er mik­il áhuga­mann­eskja um mat og mat­ar­gerð og hef verið í mörg ár,“ seg­ir Kol­brún Ýr í sam­tali og bæt­ir við: „Ég myndi segja að áhug­inn hafi byrjað þegar ég og fjöl­skylda mín keypt­um veit­ingastaðinn Thor­vald­sen og rák­um í sjö ár. Þar vann ég með ýms­um mat­reiðslu­mönn­um og kom að hönn­un á mat­seðlum þar öll árin,“ segir Kolbrún Ýr Árnadóttir.

Fann loksins sína hillu

Kolbrún Ýr nýtur þess að vera í eldhúsinu og töfra fram kræsingar fyrir sig og sína. „Mér þykir fátt skemmtilegra en að bjóða fjölskyldu og vinum í mat þar sem ég er búin að nostra við matinn yfir daginn og njóta svo saman.“ Kol­brún seg­ist hafa strögglað við auka­kíló­in frá um 25 ára aldur og hef­ur prófað flesta kúra og bæti­efni sem til eru. „Þegar ég kynnt­ist lág­kol­vetna- og ke­tóm­ataræðinu fann ég að það hentaði mér mjög vel, ég fann mína hillu. Eins og svo oft áður þegar fólk er að byrja á nýju mataræði vant­ar það hug­mynd­ir og sér­stak­lega á ís­lensku. Mér fannst al­veg vanta að ég gæti keypt mér mat­seðil sem segði mér hvað ég ætti að borða yfir dag­inn og upp­skrift­ir. Það er alls eng­in skylda að fara eft­ir seðlin­um frá a til ö held­ur má líta á hann sem eins kon­ar til­lög­ur að deg­in­um. Með því að fjár­festa í svona til­bún­um mat­seðli lær­irðu heil­an hell­ing um nýj­ar sam­setn­ing­ar og einnig hvernig á að setja sam­an máltíðir,“ seg­ir Kol­brún Ýr og bætir við að núna í sumar hafi golfið tekið dálítinn tíma frá eldamennskuna. „Núna er ég tilbúin í haustið og taka matseldina föstum tökum aftur og er búin að taka saman vikumatseðil fyrir vikuna sem er fjölbreyttur og keto vænn.“

Hægt er að fylgja Ketó -þjálfun á facebook hér og á Instagram reikningnum hér.

Mánudagur – Fiskréttur sem steinliggur

„Mér finnst rosa gott að byrja vikuna á fiskrétt, svo létt og gott í magann því oft erum við búin að borða aðeins þyngri mat yfir helgina.“

Girnilegur fiskréttur.
Girnilegur fiskréttur. Ljósmynd/Kolbrún Ýr

Þriðjudagur – Ketó-salat með kjúkling

„Gott kjúklingasalat er klassískt, mér finnst líka gott að gera aðeins aukalega og eiga í hádegismat jafnvel næstu 2 daga. Gott að skipuleggja sig vel.“

Ketó-salat með kjúkling sem allir elska að njóta.
Ketó-salat með kjúkling sem allir elska að njóta.

Miðvikudagur – Kjötbollur úr smiðju Thelmu

„Ég ber kjötbollurnar fram með fersku pico de gallo og hrísgrjónum en ég sleppi þeim fyrir mig en aðrir fjölskyldumeðlimir fá þau.“

Ómótstæðilega bollur úr smiðju Thelmu Þorbergs.
Ómótstæðilega bollur úr smiðju Thelmu Þorbergs. Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Fimmtudagur – Fajita-kjúklingavefjur

„Hér má nota kjúkling eða nautahakk, svo nota ég lágkolvetna vefjurnar frá lowcarb.is.“

Kjúklingavefjur sem bragðast afar vel.
Kjúklingavefjur sem bragðast afar vel. Ljósmynd/Ljúfmeti og lekkertheit

Föstudagur – Ketó-pítsa með chorizo, klettasalati og parmesan

„Yndislegt að enda vinnuvikuna á einfaldri ketó-pítsu og njóta með góðu Tommasi rauðvínsglasi.“

Pítsa með ketó-pítsa með chorizo, klettasalati og parmesan sem gleður …
Pítsa með ketó-pítsa með chorizo, klettasalati og parmesan sem gleður bragðlaukana. Ljósmynd/Berglind Guðmunds

Laugardagur – Gómsætir smábitar Kolbrúnar

„Ég ætla vera með smá hamingjustund á laugardaginn og þá verður þessi réttur fyrir valinu, hef smá tíma til að dúlla mér við þetta yfir daginn og í engu stressi. Ég pikkla rauðlaukinn sjálf og hér er uppskriftin að því.“

Góm­sæt­ir and­ar-con­fit smá­bit­ar (canape), sem born­ir eru fram á vöffl­um.
Góm­sæt­ir and­ar-con­fit smá­bit­ar (canape), sem born­ir eru fram á vöffl­um. Ljósmynd/Kolbrún Ýr

Pikklaður rauðlaukur

„Síðan er keto-kaka í eftirrétt sem slær alltaf í gegn hvort sem þeir eru á ketó/lágkolvetna eða ekki.“

Ketó væn kaka fyrir alla.
Ketó væn kaka fyrir alla. Ljósmynd/Kolbrún Ýr

Ketó-kaka

Sunnudagur – Teriyaki núðlur með nautakjöti

„Það er einhver kósí fílingur við heitan ketó núðlurétt á sunnudagskvöldi og síðan fáum við okkur smá kökusneið sem var afgangs frá kvöldinu áður.“

Núðluréttur sem steinliggur á sunnudagskvöldi.
Núðluréttur sem steinliggur á sunnudagskvöldi. Ljósmynd/María Gomez.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert