Ólöf Ólafsdóttir landsliðskokkur og konditori á Monkeys á heiðurinn á vikumatseðlinum að þessu sinni sem á eftir að gleðja alla sælkera. Ólöf er annáluð fyrir kunnáttu sína í eftirréttagerð og þekkt fyrir að töfra fram dýrindis eftirrétti sem gleðja bæði auga og munn. Hún veit fátt skemmtilegra en að matreiða góðan og ljúffenga eftirrétti og á sumrin elskar hún að grilla dýrindis steikur sem kitla bragðlaukana. Miklar annir eru fram undan hjá Ólöfu og hún hefur staðið í ströngu síðustu vikur og mánuði fyrir komandi verkefni.
„Undanfarið hefur verið mikið af plönum í kortunum hjá mér sem er meðal annars kokkalandsliðið, það er algjört ævintýri. Núna í vor kláraði ég eitt mitt stærsta verkefni hingað til og get ég ekki beðið eftir að deila því með þjóðinni en þangað til er hægt að fylgjast með á bak við tjöldin á Instagram reikningnum mínum @olofolafs . Þar er ég mikið að sýna frá komandi verkefnum,“ segir Ólöf sem er farin að iða í skininu fyrir komandi vetri.
„Það ætti ekki að fara fram hjá neinum að ég sé með mat á heilanum og fannst mér einstaklega skemmtilegt að fá að búa til vikumatseðil og byrja á frídegi verslunarmanna sem er þægilegur dagur eftir mikla matarhelgi enda búið að grilla og njóta í botn.“
Hér vikumatseðillinn í boði eftirréttameistarans kominn í allri sinni dýrð.
Mánudagur - Spaghettí Bolognese
„Tilvalið er að byrja vikuna í eldhúsinu lauflétta og henda í einn pastarétt, hann klikkar aldrei.“
Þriðjudagur - Miso marineruð bleikja með agúrkusalatssósu
„Mér finnst fátt betra en að elda góðan fisk og er bleikja í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er alltaf skemmtilegt að leika sér með mísó enda virkilega gott á bragðið og hef ég til dæmis notað það í eftirréttagerð.“
Miðvikudagur - Karríkókospottréttur með bönunum
„Undanfarin ár hef ég verið mikið fyrir að gera góða og næringarríka grænmetisrétti og hittir þessi beint í mark.“
Fimmtudagur - Sumarlegt salat með lambafillet
„Þetta salat er fullkomin upphitun fyrir næstu grill helgi.“
Föstudagur - Nautalund að bestu gerð
„Það er tilvalið að byrja helgina með stæl með þessari dýrindis nautalund og mæli ég hiklaust með að kíkja yfir þessar nautasteikur fyrir helgina.“
Laugardagur - Appelsínukryddlegið lamba T-bone og vanillukaka
„Það er hefð hjá mér að elda lamb á laugardeginum fyrir verslunarmannahelgina, að sitja með rauðvín í útilegustól og borða lamb er fullkomin lýsing á minni helgi. Leyfi mér það aðra helgina í röð.“
„Mæli klárlega með þessari í eftirrétt.“
Sunnudagur - Ómótstæðileg pitsa
„Það sem hittir alltaf beint í mark á sunnudögum er eitt stykki sunnudags pítsa.“