Helgarkokteillinn er frosinn mango margarita

Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er á ferðinni drykkur sem er bæði sætur og rífur aðeins í – því hann inniheldur jalapeno fyrir þá sem þora. Hildur Rut færir okkur þennan kokteil sem segir að það megi bæta við jalapeno ef þið viljið láta hann rífa í, eða minnka magnið til að gera drykkinn mildari.

Helgarkokteillinn er frosinn mango margarita

Einn drykkur

  • 4 cl Tequila Sauza Silver
  • 2 cl Cointreau
  • 2 cl safi úr lime
  • 3 cl sykursíróp (eða venjulegt síróp)
  • ½ ferskur jalapeno
  • 1 dl frosið mangó
  • 2 dl klakar
  • ½ dl appelsínusafi
  • Salt eða sykur og lime bátur til að skreyta glasið (má sleppa)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skreyta brúnina á glasinu. Nuddið lime báti við hana þar til hún verður blaut. Hellið sykri eða salti á disk, dýfið glasinu öfugu ofan í og þekjið brúnina.
  2. Smátt skerið jalapeno.
  3. Hellið tequila, cointreau, safa úr lime, sykursírópi og jalapeno í kokteilahristara og hristið vel saman.
  4. Hellið í gegnum sigti í blender ásamt frosnu mangó, klökum, appelsínusafa og bætið 1 msk af jalapeno við ef að þið viljið láta þetta rífa aðeins í.
  5. Blandið öllu saman og hellið í glasið. Njótið!

Sykursíróp

  1. Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
  2. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
  3. Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.
Margarita sem rífur í!
Margarita sem rífur í! Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert