Fyrsta kvikmyndin tekin upp í geimnum

Rússneskur leikstjóri og leikkona sneru aftur til jarðar í morgun eftir upptökur á fyrstu kvikmyndinni sem tekin er upp í geimnum.

Yulia Peresild og Klim Shipenko eyddu tólf dögum á alþjóðlegu geimstöðinni en þau lentu í Kasakstan í morgun ásamt geimfaranum Oleg Novitsky sem hafði verið í geimstöðinni í sex mánuði.

Leikkona Yulia Peresild á leiðinni út í geim.
Leikkona Yulia Peresild á leiðinni út í geim. AFP

Kvikmyndatökurnar eru fyrir myndina The Challange en lítið er vitað um söguþráð hennar.

Ef myndin kemur út á tilsettum tíma mun hún verða fyrsta útgefna kvikmyndin sem tekin er upp í geimnum, á undan nýjustu mynd leikarans Tom Cruise, Mission Impossible, sem er samstarfsverkefni Cruise, SpaceX og NASA.

Teymið lenti í Kasakstan í morgun.
Teymið lenti í Kasakstan í morgun. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert