Lenda þurfti flugvél Primera Air í skyndi á Shannon í Írlandi eftir að farþegi um borð fékk hjartaáfall en vélin var á leið til Íslands frá Spáni.
Vélin var á leið til Keflavíkur frá Almeríu á Spáni og var manninum komið undir læknishendur. Samkvæmt heimildum mbl.is þurfti að yfirfara vélina sökum þess að hún fór hratt niður.