Veiktist og ók á vegg

Bílstjórinn var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna.
Bílstjórinn var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna. mbl.is/Hjörtur

Sendiferðabíll ók á afturhlið bílskúrs í Háaleitishverfi í Reykjavík í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fékk bílstjórinn flogakast og missti stjórn á bifreiðinni.

Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrakbíl á bráðamóttöku Landspítalans en ekki er vitað um líðan hans að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert