Línubáturinn Rifsnes, sem strandaði skammt frá bryggju Siglufjarðarhafnar fyrr í kvöld, er nú kominn til hafnar í bænum. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni gekk björgunin vel, en björgunarbáturinn Sigurvin var kallaður út til að toga skipið af sandrifinu.
Ekki er útlit fyrir miklar skemmdir á skipinu.
Frétt mbl.is: Skip strandaði á Siglufirði