Haukur og félagar töpuðu í bikarúrslitum

Haukur Þrastarson
Haukur Þrastarson AFP/Ina Fassbender

Haukur Þrastarson, landsliðsmaður í handbolta, og félagar hans í pólska liðinu Kielce töpuðu nokkuð óvænt 29:20 fyrir Wisla Plock í úrslitaleik pólsku bikarkeppninnar.

Kielce hefur haft nokkra yfirburði í pólska boltanum undanfarin ár en Plock er þeirra helsti keppinautur. Kielce datt út úr Meistaradeild Evrópu eftir vítakeppni gegn Magdeburg í vikunni og því erfið vika fyrir Hauk að baki.

Haukur skoraði 2 mörk fyrir Kielce.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert