Umhverfisráðherra staðfestir úrskurð Skipulagsstofnunar

Umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum álvers og rafskautaverksmiðju í Reyðarfirði. Er það niðurstaða ráðuneytisins að umhverfisáhrifunum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt í matsskýrslu framkvæmdaraðila og úrskurði Skipulagsstofnunar frá því í ágúst sl.

Stofnunin féllst á byggingu allt að 420 þúsund tonna álvers og 233 þúsund tonna rafskautaverksmiðju með tveimur skilyrðum. Tvær kærur bárust ráðuneytinu vegna úrskurðarins, önnur frá Náttúruverndarsamtökum Íslands og hin frá Náttúruverndarsamtökum Austurlands, NAUST. Kæruatriðin lutu einkum að því að fyrirhugað álver og rafskautaverksmiðja muni hafa í för með sér mikla mengun á stóru svæði og að við mengunarvarnir hafi ekki verið gerð krafa um bestu fáanlegu tækni.

Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að ekkert hafi komið fram um umhverfisáhrif af völdum mengunar á loftgæði eða lífríki sjávar sem gefi tilefni til að leggjast gegn framkvæmdinni. Telur ráðuneytið að fyrirliggjandi veðurgögn séu fullnægjandi til að gera varfærna loftmengunarspá fyrir fyrirhugaða framkvæmd og ákvarða mörk þynningarsvæðis. Nauðsynlegt sé hins vegar að fylgjast með styrk brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti innan sem utan þynningarsvæðis og sannreyna þannig hvort loftmengunarspá gangi eftir.

"Að mati ráðuneytisins uppfyllir Reyðarál ákvæði íslenskra laga og reglugerða og alþjóðlegra viðmiðana um notkun bestu fáanlegrar tækni í álveri og rafskautaverksmiðju í Reyðarfirði. Helstu umhverfisáhrif verksmiðjunnar tengjast mengun vegna starfseminnar og ber að tryggja í starfsleyfi, sem nú er í vinnslu hjá Hollustuvernd ríkisins, að uppfyllt verði öll skilyrði laga og reglna um losunarmörk," segir ennfremur í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert