Slökkvistarf mun standa yfir í alla nótt

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. AFP

Slökkvistarf Børsen í Kaupmannahöfn stendur enn yfir og mun standa yfir í nótt. 

Þetta kemur fram í færslu neyðarþjónustunnar í Kaupmannahöfn á samfélagmiðlinum X.

Við höldum áfram að slökkva minniháttar elda í húsinu en aðalvinnan er eftirlit,“ segir í færslunni.

Danska ríkisútvarpið greinir frá.

Eldur kviknaði í gömlu kauphöllinni í gærmorgun en vinna stóð yfir við endurbætur á húsnæðinu, sem átti að lúka á 400 ára afmæli byggingarinnar.

Slökkviliðið óttast sérstaklega hvað verði um útveggi, sem eru lausir eftir brunann.

Vinna við að tryggja frístandandi útveggi heldur áfram, svo þeir falli ekki og eyðileggist,“ segir í tilkynningu frá neyðarþjónustu Kaupmannahafnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert