Sex létust í drónaárás Rússa

Sex létust.
Sex létust. AFP/Roman Pilipey

Sex létust í drónaárás Rússa á úkraínsku borgina Kharkiv í nótt. Tíu aðrir særðust í árásinni.

Meðal hinna særðu eru tvær konur, 25 og 52 ára, og sex karlar á aldrinum 23 til 76 ára.

Úkraínsk stjórnvöld segja nokkrar byggingar hafa skemmst í árásinni, þar á meðal íbúðarblokkir og bensínstöð.

Í gær var greint frá því að for­ráðamenn úkraínska hers­ins hefðu eyðilagt að minnsta kosti sex rúss­nesk­ar herflug­vél­ar í flug­stöð í suður­hluta Rostovs-héraðs með dróna­árás.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert