Átta rússnesk flugskeyti hæfðu stærstu vatnaflsvirkjun Úkraínu snemma í morgun og ollu umfangsmiklum skemmdum á mannvirkinu, samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara embætti Úkraínu.
Dnípró-vatnsaflsvirkjunin „var hæfð átta sinnum. Aðstaðan er í raun óstarfhæf.
Tjónið er umfangsmikið,“ sagði Júrí Belúsov, yfirmaður stríðsglæpadeildar hjá embætti ríkissaksóknara í Úkraínu, í viðtali við úkraínska sjónvarpsstöð.