Manchester United og Burnley gerðu jafntefli á Old Trafford í Manchester í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
United er í sjötta sæti deildarinnar með 54 stig. Burnley er í 19. og næstsíðasta sæti með 24 stig.
United-liðið fór betur af stað og var vaðandi í færum fyrstu 20 mínúturnar. Antony fékk megnið af færum United-manna en fór illa að ráði sínu fyrir framan markið.
Burnley tók síðan yfirhöndina það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Lyle Foster fékk tvö frábær marktækifæri en André Onana markvörður United sá við honum í bæði skipti.
United var aftur sterkari aðilinn mestallan seinni hálfleikinn en Burnley fékk hins vegar líka sín tækifæri.
Antony fékk aftur tvö góð færi en Arjanet Muric í marki Burnley varði frá honum í bæði skipti.
Jóhann Berg Guðmundsson kom þá inn á 72. mínútu leiksins.
Antony tókst þó loks að skora á 80. mínútu leiksins. Þá sendi Sander Berge, miðjumaður Burnley, boltann á Antony og hann keyrði að teig Burnley-manna. Stýrði hann síðan boltanum í netið í litlu jafnvægi og kom United yfir, 1:0.
Stuttu seina stökk Onana á Zeki Amdouni inn í teig United-manna. Eftir athugun í VAR-sjánni dæmdi John Brooks á punktinn og Burnley fékk víti. Á punktinn steig Amdouni sjálfur og skoraði örugglega, 1:1.
Bæði lið sóttu til sigurs það sem eftir lifði leiks en skildu að lokum jöfn, 1:1.
Manchester United heimsækir Crystal Palace í næstu umferð. Burnley fær Newcastle í heimsókn.