Stjórnarandstaðan lýsir yfir sigri

Nelson Chamisa, leiðtogi Lýðræðishreyfingarinnar.
Nelson Chamisa, leiðtogi Lýðræðishreyfingarinnar. AFP

Nel­son Chamisa, frambjóðandi Lýðræðishreyfingarinnar (MND), hefur lýst yfir sigri í forsetakosningnunum í Simbabve sem fóru fram í gær. Emmerson Mnangagwa, forseti landsins, sagðist þó einnig jákvæður á sigurlíkur sínar. 

Mnangagwa tilheyrir flokknum Zanu-PF, sama flokki og Robert Mugabe tilheyrði en Mugabe lýsti því opinberlega yfir í aðdraganda kosninganna að hann kysi gamla flokkinn sinn ekki í kosningunum.

Kosningarnar eru sögulegar þar sem þær eru þær fyrstu frá því landið hlaut sjálfstæði árið 1980. Muga­be var hrak­inn frá völd­um í fyrra eft­ir tæpa fjóra ára­tugi á valda­stóli. Frambjóðendur voru nokkrir tugir talsins en valið var á milli tveggja þeirra, Em­mer­son Mn­angagwa og Nel­son Chamisa. Bentu skoðanakannanir í aðdraganda kosninganna til þess að Mn­angagwa hefði naumt for­skot á Chamisa.

AFP hefur eftir Tendai Biti, hátt settum stjórnmálamanni innan Lýðræðishreyfingarinnar, að flokkurinn myndi ekki hika við að birta kosningaúrslit sín ef sigur Chamisa yrði ekki viðurkenndur. 

„Það er hafið yfir allan vafa að við sigruðum í þessum kosningum og næsti forseti Simbabve er Nelson Chamisa,“ sagði Biti á fjölmiðlafundi fyrir utan höfuðstöðvar flokksins í Harrare í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert