„Ungfrú Bessastaðir“ hefur uppfært Instagram-síðu sína

Ásdís Rán er með pósurnar á hreinu.
Ásdís Rán er með pósurnar á hreinu. Samsett mynd

Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta og athafnakona, er ein af þeim 70 sem sækjast eftir forsetastólnum. Hún tilkynnti um framboð sitt til forseta þann 20. mars síðastliðinn og virðist harðákveðin í að ná tilskyldum meðmælafjölda, en frambjóðendur til forseta þurfa að safna að lágmarki 1.500 undirskriftum. 

Ísdrottningin, sem er með tæplega 35.000 fylgjendur á Instagram, hefur nú uppfært samfélagsmiðlasíðuna og titlar sig í dag sem forsetaframbjóðanda, íslenska goðsögn og opinbera persónu. 

Undirbúningur er kominn á fullt hjá Ásdísi Rán. Hún hefur verið iðin við að birta framboðstengdar færslur á Instagram-síðu sinni þar sem hún hvetur landsmenn að styðja við framboð sitt. 

Sjálftitluð „Ungfrú Bessastaðir“ er einnig á fullu að æfa hina svokölluðu forsetapósu, krosslagðar hendur og blákalt augnaráð. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir