Breski tónlistarmaðurinn Jim Rodford er látinn 76 ára að aldri. Rodford var bassaleikari Kinks í átján ár eða frá árinu 1979. Hann lék einnig með hljómsveitunum Argent og The Zombies.
Frændi hans og félagi úr hljómsveitinni, Rod Argent, greindi frá andláti hans á Facebook en Rodford lést þegar hann datt niður stiga.
Breska hljómsveitin The Kinks kom fram á átta tónleikum í Austurbæjarbíói árið 1965 en þá var Rodford ekki kominn í hljómsveitina.
Upplýsingar um Jim Rodford á Wikipedia