Hirð tónlistarmannsins heitins Svavars Péturs Eysteinssonar, sem var betur þekktur sem Prins Póló, spilar á Hammondhátíð á Djúpavogi á morgun, 26. apríl.
Er það á sjálfum afmælisdegi prinsins sem hefði fagnað 47 ára afmæli sínu.
Yfirskrift tónleikanna er Prinsinn heim. Þar sem Svavar Pétur bjó í Berufirði og þótti afskaplega vænt um staðinn og fólkið. Hann lést haustið 2022 eftir baráttu við krabbamein.
Hirðin er að þessu sinni svona skipuð: Valdimar Guðmundsson, Lay Low, Benedikt Hermann Hermannsson, Borko, Örvar Smárason, Svanhildur Lóa og Berglind Häsler.
Kynnir verður Sandra Barilli og í veislunni verður tilkynnt hver hlýtur fyrsta styrkinn úr Minningarsjóði Svavars Péturs Eysteinssonar og frá því verður streymt á Instagram-síðu Havarí.
Hirðin spilar bestu lög Prins Póló og FM Belfast þeytir skífum til að klára kvöldið með glans.