Martin orðinn tveggja barna faðir

Martin Hermannsson er orðinn tveggja barna faðir!
Martin Hermannsson er orðinn tveggja barna faðir! mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuknattleiksmaðurinn Martin Hermannsson og eiginkona hans, Anna María Bjarnadóttir, eignuðust sitt annað barn á dögunum. Fyrir eiga þau fimm ára gamlan son.

Martin deildi gleðifregnunum með fylgjendum sínum á Instagram, en með færslunni birti hann fallegar myndir af fjölskyldunni. „Besta mamman og stoltur stóri bróðir,“ skrifaði hann í færslunni. 

Martin spilar með Alba Berlín í Þýskalandi, en hann var ekki með í leik liðsins við Mónakó í Evrópudeildinni í körfubolta í síðustu viku þar sem hann var á fæðingardeildinni. Þá hefur Martin einnig verið lykilmaður í íslenska karlalandsliðinu í körfuknattleik, en hann hóf feril sinn hjá KR og fór þaðan til Bandaríkjanna þar sem hann lék fyrir LIU Brooklyn-háskólann í NCAA háskóladeildinni. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert