Sonur Birgittu Lífar á góðri leið að verða heimsflakkari

Ungi drengurinn er á góðri leið að verða heimsflakkari.
Ungi drengurinn er á góðri leið að verða heimsflakkari. Samsett mynd

Birgitta Líf Björnsdóttir, nýbökuð móðir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, lætur ekki líða langt á milli utanlandsferða. Það eru ekki liðnar nema örfáar vikur frá því að hún sleikti sólina á Spáni ásamt sambýlismanni sínum, Enok Jónssyni, og nýfæddum syni parsins, sem þá var rúmlega eins mánaðar gamall.

Birgitta Líf er nú mætt til skosku menningarborgarinnar Glasgow ásamt syni sínum og móður, Hafdísi Jónsdóttur, betur þekkt sem Dísa í World Class. 

Þetta er önnur utanlandsferð drengsins eftir að hann kom í heiminn þann 8. febrúar síðastliðinn, en Birgitta Líf var mjög dugleg að ferðast yfir meðgöngutímabilið og heimsótti meðal annars Am­al­fi-strönd­ina á Ítal­íu, hlýddi á rapparann 50 Cent í Lund­ún­um, upplifði jólaandann í New York og fór í skvísu­ferð til Par­ís­ar.

Samfélagsmiðlastjarnan birti myndaseríu á Instagram-síðu sinni fyrr í dag sem sýnir mæðginin njóta lífsins á götum Glasgow. Birgitta Líf hefur einnig birt þó nokkur myndskeið í Instagram Story. 

„Sætasti fylgihluturinn minn,“ skrifaði hún við færsluna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka