Eiginmaður Hilary Duff gekkst undir ófrjósemisaðgerð

Parið gekk í hjónaband árið 2019.
Parið gekk í hjónaband árið 2019. Samsett mynd

Matthew Koma, eiginmaður leikkonunnar Hilary Duff, gekkst undir ófrjósemisaðgerð á mánudag. Hann leyfði fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast með ferlinu, nánast frá A - Ö.

Koma og Duff greindu frá því í desember að þau ættu von á sínu þriðja barni, en fyrir eiga hjónin tvær ungar dætur. Duff á einnig son úr fyrra hjónabandi.

Koma deildi rúmlega 20 myndum og myndskeiðum á Instagram Story sem sýndu frá deginum, bæði fyrir og eftir ófrjósemisaðgerðina. Koma tók meðal annars mynd af sér í spítalakjólnum, á nærbuxunum eftir aðgerðina og uppi í rúmi þegar hann var kominn heim. Koma eyddi því sem eftir var af deginum í rúminu að horfa á raunveruleikaseríuna Love Is Blind.

Koma og Duff gengu í hjónaband árið 2019. Dætur parsins, Banks og Mae, komu í heiminn 2018 og 2021. Sonur Duff, Luca, fæddist árið 2012. 

Koma var hress á sjálfan aðgerðardaginn.
Koma var hress á sjálfan aðgerðardaginn. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert