Heitasta par í heimi sleikti sólina

Travis Kelce og Taylor Swift kyssast.
Travis Kelce og Taylor Swift kyssast. AFP/Ezra Shaw

Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-leikmaðurinn Tra­vis Kelce eru enn saman þrátt fyrir að það sé brjálað að gera hjá þeim. Þau skelltu sér í frí nýlega til þess að slaka á og urðu Bahama-eyjar fyrir valinu. 

„Þau fóru í frí til Bahama-eyja í nokkra daga,“ sagði heimildarmaður People um ferð skötuhjúanna. „Þau þurftu bæði á þessu fríi að halda. Þau nutu þess mjög mikið. Þau eru svo hamingjusöm saman.“

Instagram-miðillinn DeuxMoi birti mynd af pari sem leit út fyrir að vera Swift og Kelce á Bahama. Vefmiðillinn TMZ greindi frá því að parið hefði dvalið á lúxushótelinu Valentines Resort & Marina á eyjunni Harbour. 

Mikið að gera hjá þeim báðum

Aðdáendur Swift hafa haft áhyggjur af henni að undanförnu enda hefur hún verið undir miklu álagi. Tón­list­ar­kon­an var val­in mann­eskja árs­ins 2023. Hún gerðist form­lega millj­arðamær­ing­ur og hóf gríðarlega far­sælt tón­leika­ferðalag sitt, Eras Tour. Swift byrjaði tón­leika­ferðalag sitt í mars á síðasta ári og hef­ur ferðast vítt og breitt um heim­inn í tæpt ár. 

Það hefur líka verið mikið að gera hjá Kelce en hann vann ofurskálina með liði sínu Kans­as City Chi­efs í febrúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert