Finndu smjörþefinn af ljúffengum frönskum mat og drykk  

Frakkar kunna að leika við bragðlaukana og hér eru 10 …
Frakkar kunna að leika við bragðlaukana og hér eru 10 franskir réttir og drykkir sem þú ættir að smakka í næstu ferð þinni til Parísar. Samsett mynd

Frakkar eru þekktir fyrir að kunna að njóta þegar kemur að mat og drykk. Sumir hafa haft kynni af frönskum eldhúsum án þess að hafa nokkurn tímann stigið fæti á franska grundu.

Hér eru 10 franskir réttir og drykkir sem þú ættir að prófa við næstu Parísarferð.

Café au lait

Café au lait.
Café au lait. Ljósmynd/Unsplash

Byrjaðu daginn á klassísku frönsku kaffi sem framreitt er til helminga af espresso og flóaðri mjólk.

Croissant

Croissant að hætti Frakka.
Croissant að hætti Frakka. Ljósmynd/Unsplash

Njóttu nýbakaðs smjördeigshorns frá hverfisbakaríi í morgunmat eða sem millimál.

Crêpes

Crêpes er unaðslega góðar pönnukökur.
Crêpes er unaðslega góðar pönnukökur. Samsett mynd

Dekraðu við þig, þunnar fíngerðar franskar pönnukökur fylltar með nutella súkkulaði og banana eða bragðmiklum og matarmiklum pönnukökum eins og skinku og osti.

Croque Monsieur/Madame

Þessi er ómótstæðilega girnileg, Croque Madame.
Þessi er ómótstæðilega girnileg, Croque Madame. Ljósmynd/Unsplash

Prófaðu þessar klassísku frönsku samlokur með skinku og osti, toppaðar með bechamelsósu eða Madame sem framreitt er með spældu eggi ofan á.

Escargots

Franskir sniglar eru lostæti.
Franskir sniglar eru lostæti. Ljósmynd/Sjöfn

Þorið þið að smakka franska snigla eldaða upp úr hvítlaukssmjöri? Sniglarnir eru hefðbundið franskt lostæti sem oftast er borið fram sem forréttur á frönskum veitingahúsum.

Coq au Vin

Ekta franskur kjúklingaréttur.
Ekta franskur kjúklingaréttur. Ljósmynd/Unsplash

Njóttu þessa ljúffenga kjúklingaréttar sem er steiktur upp úr víni ásamt sveppum, lauk og beikoni og er algjörlega ómissandi franskur réttur.

Ratatouille

Ratatouille er góður franskur grænmetisréttur.
Ratatouille er góður franskur grænmetisréttur. Ljósmynd/Sjöfn

Njóttu þessa litríka grænmetisréttar gerðan úr tómötum, kúrbít, eggaldin, papriku, lauk og kryddjurtum, upprunninn frá Nice eða Provence.

Makkarónur

Frönsku makkarónur eru ávallt fallegar fyrir augað og ljúffengar fyrir …
Frönsku makkarónur eru ávallt fallegar fyrir augað og ljúffengar fyrir matarhjartað. Ljósmynd/Unsplash

Dekraðu við þig með litríkum frönskum makkarónum.

Foie Gras

Foie gras er sælgæti að njóta.
Foie gras er sælgæti að njóta. Ljósmynd/Sjöfn

Upplifðu franska gæsalifur eða foie gras sem er eitt af góðmeti Frakka í forrétt með ristuðu frönsku brauði.

Tartar

Tartar sem allir sælkerar ættu að smakka.
Tartar sem allir sælkerar ættu að smakka. Ljósmynd/Unsplash

Prófaðu steik tartare, hráan nautakjötsrétt, kryddaður með kapers, lauk, sinnepi og kryddjurtum, oftast borinn fram með hrárri eggjarauðu ofan á réttinum.

Tarte Tatin

Það verður enginn svikinn af þessari dýrðarköku.
Það verður enginn svikinn af þessari dýrðarköku.

Ljúktu máltíðinni með sneið af Tarte Tatin eftirrétti, eplaterta á hvolfi, borin fram með ögn af rjóma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert