Gnocchi sem meðlæti öfugt við hefðirnar hjá ítölskum ömmum

Gnocchi með blómkáli, sveppum, salatosti og kryddað til er tilvalið …
Gnocchi með blómkáli, sveppum, salatosti og kryddað til er tilvalið meðlæti. Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Svona vill Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir hjá Döðlur og smjör hafa gnocchi sitt. Með blómkáli og sveppum svo hægt sé að bera fram með mat, kjöti, kjúkling eða jafnvel fisk. Hún vill ekki hafa það einsleitt og eintómt eins og Ítalirnir bera það fram, með smá sósu og parmesan.

„Fyrir mér virkar þetta fullkomlega, borða smá gnocchi án þess að það sé eintómt og einsleitt,“ segir Guðrún og bætir við að ítölsku ömmurnar séu örugglega ekki hrifnar af þessari útgáfu að gnocchi.

Gnocchi meðlæti

Fyrir 4

  • 1 lítill blómkálshaus
  • 2 msk. smjör
  • 150 g sveppir
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 tsk. timian
  • 1 lítil krukka salatostur
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 1 pk. Gnocchi frá DeCecco

Aðferð:

  1. Setjið vatn í botn og leyfið suðunni að koma upp.
  2. Skerið blómkálið í smáa bita og setjið út í pottinn, sjóðið í 5-10 mínútur.
  3. Hellið vatninu af leggið til hliðar.
  4. Skerið sveppina í bita og setjið á pönnu ásamt smjöri, steikið við miðlungshita í 2-3 mínútur.
  5. Bætið pressuðum hvítlauk saman við ásamt timian.
  6. Bætið þá blómkálinu saman við og setjið á lágan hita.
  7. Setjið vatn í pottinn á ný og leyfið suðunni að koma upp.
  8. Bætið þá gnocchi út í vatnið og á aðeins 2-3 mínútur fer það að vera tilbúið. Þegar það fer að fljóta er það klárt.
  9. Hellið vatninu af og blandið saman við sveppina og blómkálið.
  10. Hellið salatostinum yfir og blandið öllu vel saman.
  11. Guðrúnu finnst gott að stilla ofninn á 180°C g leyfa þessu að fara inn í ofn í 5-10 mínútur til að leyfa ostinum að bráðna enn meira og eldast vel saman, en ekki nauðsynlegt.
  12. Berið fram með því sem ykkur langar til, hvort sem það er kjúklingur, fiskur eða annað.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert