Pétur nýr formaður SAF

Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viator ehf., var kjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar …
Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viator ehf., var kjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar til næstu tveggja ára. Ljósmynd/SAF

Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri Viator ehf. var kjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, til næstu tveggja ára á aðalfundi samtakanna í gær. Pétur tekur við formennskunni af Bjarnheiði Hallsdóttur framkvæmdastjóra Kötlu-DM, sem verið hefur formaður frá 2018.

Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um þrjá meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára.

Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnandi og eigandi Lava Show, Erna Dís Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandshótelum og Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, hlutu kjör í stjórn SAF til næstu tveggja ára.

Þau sem sitja í stjórn SAF eru Rannveig Grétarsdóttir eigandi Eldingar, Björn Ragnarsson forstjóri Icelandia, Erna Dís Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri hjá Íslandshótelum, Nadine Guðrún Yaghi forstöðumaður samskipta hjá Play, Helgi Már Björgvinsson yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Ragnhildur Ágústsdóttir stofnandi og eigandi Lava Show.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK