Mun hærri rekstrarhagnaður en spáð var

Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2017 verður birtur á miðvikudaginn.
Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2017 verður birtur á miðvikudaginn. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

EBITDA spá N1 hefur verið hækkuð um 100 milljónir króna í ljósi afkomu fyrsta ársfjórðungs. Samkvæmt drögum að uppgjöri 1. ársfjórðungs 2017 hjá N1 hf. er EBITDA um 520 milljónir króna samanborið við 374 milljónir króna á sama fjórðungi 2016.

Í tilkynningu N1 til Kauphallarinnar kemur fram að umferð á þjóðvegum landsins hafi aukistum 14,1% á milli fyrsta ársfjórðungs 2016 og 2017 og það hafi skilað sér í aukinni sölu á bifreiðaeldsneyti sem jókst um 8,7% í magni á milli tímabila. Jafnframt var þróun á olíuverði félaginu hagstæð á fjórðungnum auk þess sem að önnur vörusala skilaði afkomu umfram áætlanir.

„Í ljósi afkomu 1. ársfjórðungs hefur EBITDA spá félagsins verið hækkuð um 100 m.kr. eða í 3.500 - 3.600 m.kr. Það skal þó áréttað að rekstur N1 er sveiflukenndur og árstíðabundinn en stærsti hluti EBITDA fellur til á 2 og 3. ársfjórðungi hvers árs,“ segir í tilkynningunni.

Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2017 verður birtur á miðvikudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK