Náttúrvernd Þingeyinga fékk til umsagnar frummatsskýrslu vegna áforma um virkjun á allt að 9,8 MW virkjun Svartár í Bárðardal og á fundi þann 1. nóvember síðastliðinn þar sem nefndin kynnti sér fyrirliggjandi gögn og fór yfir málið í heild sinni.
Komst nefndin að þeirri niðurstöðu að rétt sé að hverfa frá öllum hugmyndum um virkjun Svartár. Fram kemur og það yrði Íslendingum, ekki síst Þingeyingum sem á sínum tíma vörðu Mývatn og Laxá gegn slíkum áformum, mikil álitshnekkir að heimila slíka framkvæmd.
Nefndin er mjög ósammála því mati framkvæmdaraðila að áhrif virkjunar séu að mestu óveruleg til nokkuð neikvæð og að virkjunin sé ekki líkleg til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér. Að raska einstöku vistkerfi Svartár og Suðurár og þar með búsvæði fágætra ábyrgðartegunda með þeim hætti sem ráðgert er getur aldrei talist annað en umtalsverð umhverfisáhrif að mati nefndarinnar.
Í stað virkjunar leggur nefndin til að hafinn verði undirbúningur að friðlýsingu vatnasviðs Svartár og Suðurár.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |