Selá í Vopnafirði opnaði síðdegis í gær og fór veiðin vel af stað þrátt fyrir mikla úrkomu og vatnsveður daginn áður.
Að sögn Gísla Ásgeirssonar hjá Streng, sem heldur utan um veiðirétt í ánni, komu 9 laxar á land á þessari fyrstu vakt. Flestir veiddust þeir í Fosshylnum og af Fossbreiða og voru allir hefðbundnir fallegir tveggja ára fiskar frá 75 til 85 cm. Gísli sagði að þetta væri mjög góð útkoma sérstaklega gott í ljósi þess að mikla rigningu daginn áður og áin hafi bólgnað mikið og skolast talsvert.
Talsvert er síðan menn urðu varir við fyrstu laxana í Selárfossi og fyrir nokkrum dögum sáust þar nokkrir tugir saman komnir.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |