Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Keflvíkinga í körfuknattleik, er á leið í enn einn oddaleikinn en fyrir þá sem þekkja er Friðrik svo sannarlega ekki í nýrri stöðu.
Sú staðreynd gæti reynst þeim Keflvíkingum þyngdar sinnar virði í gulli þegar þeir mæta Haukum á miðvikudag. Friðrik sagði sína menn hafa spilað vel í kvöld eftir sigur í fjórða leik liðanna og um leið jafnað seríuna. Friðrik sagði að í oddaleik þyrftu menn að þora að vera til.