Fredericia tapaði 31:30 á útivelli gegn Skjern í úrslitakeppni danska handboltans í dag en Guðmundur Guðmundsson er þjálfari liðsins og Einar Þorsteinn Ólafsson er leikmaður þar.
Einar skoraði eitt mark í nauma tapinu en með sigrinum tók Skjern toppsætið af Fredericia í riðlinum.
Fredericia var yfir í hálfleik, 14:13, eftir nokkuð jafnar 30 mínútur. Í seinni hálfleik munaði aldrei meira en tveimur mörkum á liðinum.
Undir lokinn náði Skjern forystu og Fredericia var til skiptis einu marki undir eða að jafna en Skjern endaði leikinn vel og tók sigurinn.