Ólafía upp um 522 sæti á heimslistanum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur heldur betur þotið upp heimslistann í golfi sem er uppfærður vikulega. Hún er nú í 182. sæti listans og hefur enginn íslenskur kylfingur náð ofar.

Ólafía fer upp um 15 sæti frá listanum í síðustu viku þegar hún var í 197. sæti. Á einu ári hefur Ólafía hækkað sig um heil 522 sæti eftir að hafa verið í 704. sæti listans. Sannkallað risastökk.

Staðan á heimslistanum er gríðarlega mikilvæg fyrir stöðu keppenda fyrir Ólympíuleikana 2020 í Tókýó í Japan og miðað við stöðuna nú þá væri hún í hópi þeirra sem komast á ÓL.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert