Fjórða og jafnframt síðasta stórmót Tennissambands Íslands á árinu kláraðist í Tennishöllinni í Kópavogi í dag. Anna Soffía Grönholm úr Tennisfélagi Kópavogs og Raj K. Bonifacius úr tennisdeild Víkings stóðu uppi sem sigurvegarar í einliðaleik.
Alls voru 82 keppendur á mótinu og var keppt í míní-tennis, stelpna- og strákaflokki U10 / U12 / U14 og opnum flokkum karla og kvenna.
Úrslit í kvennaflokki:
1.sæti Anna Soffía Grönholm, TFK
2.sæti Sofía Sóley Jónasdóttir TFK
3.-4.sæti Rán Christer og Selma Dagmar Óskarsdóttir, TFK
Úrslit í karlaflokki:
1.sæti Raj K. Bonifacius, Víkingi
2.sæti Björgvin Atli Júlíusson, Víkingi
3.sæti Stefán Reynir Pálsson, TFG