Manchester City mætir Chelsea í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag en City verður mögulega án Erling Haaland.
Haaland var tekinn út af undir lok leiks á miðvikudaginn þegar Real Madríd sló City úr leik í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri liðsins sagði eftir leikinn að Haaland hefði beðið um skiptinguna og það þyrfti að koma í ljós hvort að hann spili í dag eða ekki.
Kevin de Bruyne bað einnig um skiptingu í leiknum en ætti að vera leikhæfur í dag.