Enski landsliðsfyrirliðinn Harry Kane verður með Bayern München í stórleik helgarinnar gegn Borussia Dortmund í 1. deild þýska fótboltans í München á morgun.
Thomas Tuchel staðfesti það í dag en Kane dró sig úr enska landsliðshópnum í síðustu viku.
Kane hefur verið magnaður í liði Bayern á tímabilinu en hann hefur skorað 31 mark og lagt upp sjö önnur í 26 leikjum.
Bæjarar þurfa nauðsynlega á sigri að halda á morgun en liðið er tíu stigum á eftir toppliði Leverkusen þegar átta umferðir eru eftir.