Viðar Örn á skotskónum

Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv gegn …
Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv gegn KR í sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Viðar Örn Kjartansson skoraði eitt af mörkum Maccabi Tel Aviv þegar liðið vann 3:2 útisigur gegn Maccabi Netanya í ísraelsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Maccabi Tel Aviv lenti tvívegis undir í leiknum en Viðar Örn jafnaði metin í 2:2 á 50. mínútu og níu mínútum síðar skoraði Nick Blackman sigurmarkið. Viðar var tekinn af velli á 77. mínútu leiksins.

Viðar Örn hefur þar með skorað þrjú mörk í fyrstu fjórum umferðum deildarinnar en liðið er 9 stig og er stigi á eftir Beitar Jerusalem og Hapoel Haifa

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert