Antony svarar fyrir sig

Antony er leikmaður Manchester United.
Antony er leikmaður Manchester United. AFP/Paul Ellis

Brasilíumaðurinn Antony, kantmaður Manchester United, hefur svarað fyrir sig eftir fagn hans beint fyrir framan leikmenn Coventry er United-liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins í fótbolta um helgina. 

Manchester United vann B-deildarlið Coventry í vítaspyrnukeppni eftir að Coventry kom til baka 3:0-undir og knúði fram framlengingu. 

Er Rasmus Höjlund tryggði United sigur í vítaspyrnukeppninni fagnaði Antony fyrir fram leikmenn Coventry sem vakti mikla reiði. 

Brasilíumaðurinn nýtti sér samfélagsmiðilinn X, áður Twitter, til að afsaka sig. 

„Coventry sýndi hvers vegna liðið komst í undanúrslit. Við vildum komast í úrslitaleikinn fyrir stuðningsmenn okkar. Leikmaður þeirra kom illa fram við þá og á þessum tímapunkti vildi ég verja félagið mitt,“ sagði Antony. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka