Skoraði úr miðjuhringnum (myndskeið)

Bruno Fernandes gerði sér lítið fyrir og skoraði úr miðjuhringnum fyrir Manchester United í 2:2-jafnteflinu gegn Liverpool í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Luis Díaz og Mo Salah gerðu mörk Liverpool á meðan Kobbie Mainoo gerði hitt mark United í fjörugum leik.

Svipmyndir úr honum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert