Dramatískt sigurmark í lokin (myndskeið)

Carlton Morris var hetja Luton er liðið vann sigur á Bournemouth á heimavelli, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Marcus Tavernier kom Bournemouth yfir snemma í seinni hálfleik en Jordan Clark jafnaði á 73. mínútu og Morris skoraði sigurmarkið á lokamínútunni.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert