Knattspyrnumaðurinn Þorlákur Breki Þ. Baxter er genginn til liðs við Selfoss á láni frá Stjörnunni.
Þorlákur Breki lék sinn síðasta leik fyrir Stjörnuna í bili í sigri á Augnabliki, 2:1, í 32-liða úrslitum bikarsins í gær. Skoraði hann þar fyrra mark Stjörnunnar á 26. mínútu.
Breki, sem er 19 ára gamall, er uppalinn hjá Hetti en skipti yfir í Selfoss fyrir tímabilið 2021.
Skrifaði hann undir þriggja ára samning við Stjörnuna fyrir yfirstandandi tímabil og því framtíðarmaður í Garðabænum.