Stórkostlegur Haaland (myndskeið)

Eins og oft áður stal Norðmaðurinn Erling Haaland senunni er Manchester City vann sannfærandi sigur á Wolves, 5:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Haaland gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur fyrstu mörk City. Julian Álvarez komst einnig á blað. Hwang Hee-Chan gerði mark Wolves.

Sýninguna frá Haaland má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert