Ung Valskona á Nesið

Kolbrá Una Kristinsdóttir er komin til Gróttu að láni út …
Kolbrá Una Kristinsdóttir er komin til Gróttu að láni út tímabilið. Ljósmynd/Grótta

Knattspyrnukonan Kolbrá Una Kristinsdóttir er kominn til Gróttu frá Val að láni út tímabilið. Hin 17 ára gamla Kolbrá hefur leikið 24 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Hún var aðeins 16 ára gömul þegar hún lék sinn fyrsta, og til þessa eina, leik í efstu deild með Val á síðustu leiktíð gegn Selfossi.

Kolbrá þekkir vel til á Nesinu, því hún var að láni hjá Gróttu seinni hluta síðasta tímabils og lék þá sex leiki í 1. deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert