„Ég hef trú á mínum konum í ár,“ sagði Þóra Björg Helgadóttir, fyrrverandi fyrirliði kvennalandsliðsins, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um Breiðablik.
Breiðablik er spáð 2. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
„Mér fannst ég ekki sjá hvert planið var undir stjórn Ásmundar Arnarssonar,“ sagði Þóra.
„Þú ert alltaf með efnivið hjá Breiðabiki og þú getur alltaf búið til efnivið, ef þú ert góður í því en núna eru þær komnar með fallbyssur í þjálfarateymið sem eru búnar að sanna sig,“ sagði Þóra Björg meðal annars.