„Mér finnst skrítið að allir þessir leikmenn séu að fara í Val,“ sagði Þóra Björg Helgadóttir, fyrrverandi fyrirliði kvennalandsliðið, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um Íslandsmeistara Vals.
Val er spáð efsta sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hefur unnið deildina undandarin þrjú tímabil.
„Ég skil að Valur vilji gleypa markaðinn og taktískt er það klókt, ef þú hefur efni á því,“ sagði Þóra.
„Ég skil ekki alveg af hverju leikmenn eru að fara þangað, eru launin svona há?“ sagði Þóra meðal annars.