„Þá getur þú ekki stefnt á annað sætið“

„Þegar þú ert búinn að setja saman lið eins og Valsmenn hafa gert þá getur þú ekki stefnt á annað sætið,“ sagði Víðir Sigurðsson, fréttastjóri íþrótta hjá Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um Val.

Val er spáð 2. sæti deild­ar­inn­ar í spá íþrótta­deild­ar Árvak­urs en liðið hafnaði í öðru sæt­inu á síðustu leiktíð.

Hafa allt til að fara alla leið

„Þeir enduðu í öðru sæti í fyrra og eru komnir með Gylfa Þór Sigurðsson á miðjuna núna,“ sagði Víðir.

„Þeir eru með Aron Jóhannsson við hliðina á honum og Bjarni Mark Duffield er kominn sem varnartengiliður.

Valur hefur allt til þess að fara alla leið í þessu móti,“ sagði Víðir meðal annars.

Upphitunarþátt Dagmála fyrir Bestu deild karla má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Gylfi Þór Sigurðsson skrifaði undir hjá Val í síðasta mánuði.
Gylfi Þór Sigurðsson skrifaði undir hjá Val í síðasta mánuði. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert