Skrifaði undir á Hlíðarenda í þriðja sinn

Kristinn Freyr Sigurðsson er genginn til liðs við Valsmenn í …
Kristinn Freyr Sigurðsson er genginn til liðs við Valsmenn í þriðja sinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson er genginn til liðs við Val.

Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag en Kristinn, sem er þrítugur, kemur til félagsins frá FH þar sem hann lék á síðustu leiktíð.

Þetta er í þriðja sinn sem leikmaður gengur til liðs við Val en hann kom fyrst til félagsins frá Fjölni árið 2012, hann snéri svo heim úr atvinnumennsku árið 2018 eftir eitt tímabil í herbúðum Sundsvall og samdi aftur við Val.

Kristinn varð Íslandsmeistari með liðinu árin 2018 og 2020 og bikarmeistari 2015 og 2016. Alls á hann að baki 218 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 42 mörk og þá á hann að baki einn A-landsleik.

Hver annar en Kristinn Freyr Sigurðsson er mættur aftur á Hlíðarenda,“ segir meðal annars í tilkynningu Valsmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert