Hákon tryggði Fylki stig

Hákon Ingi Jónsson jafnaði fyrir Fylki.
Hákon Ingi Jónsson jafnaði fyrir Fylki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fylkir og Þróttur úr Reykjavík skildu jöfn, 1:1, í Lengjubikar karla í fótbolta í Egilshöllinni í dag. Þróttur komst yfir í fyrri hálfleik en Fylkir jafnaði leikinn í seinni hálfleik. 

Daði Ólafsson skoraði sjálfsmark á 20. mínútu og kom Þrótti yfir og var staðan í hálfleik 1:0 fyrir 1. deildarliðinu. 

Fylkismenn jöfnuðu hins vegar metin á 72. mínútu þegar Hákon Ingi Jónsson kom boltanum í netið og þar við sat. Bæði lið eru því með eitt stig í 2. riðli. 

KR og Njarðvík eru í toppsæti riðilsins með þrjú stig og þar á eftir koma Fylkir og Þróttur. ÍBV og Víkingur Ó. eru án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert