Fyrsta stig Stjörnunnar kom gegn Þór/KA

Stjörnukonan Jasmín Erla Ingadóttir sækir að Láru Einarsdóttur í dag.
Stjörnukonan Jasmín Erla Ingadóttir sækir að Láru Einarsdóttur í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Stjarnan fékk sitt fyrsta stig í Lengjubikar kvenna í fótbolta í dag. Stjarnan heimsótti þá Þór/KA í Bogann og skildu liðin jöfn, 1:1. 

Birna Jóhannsdóttir kom Stjörnunni yfir á 41. mínútu og var staðan í leikhléi 1:0. Margrét Árnadóttir jafnaði hins vegar á 67. mínútu og þar við sat. 

Bæði lið eru með eitt stig, en Stjarnan hefur leikið tvo leiki og Þór/KA einn. Valur er í toppsætinu með sex stig, Breiðablik í öðru með þrjú, svo Þór/KA og Stjarnan með eitt og ÍBV og Selfoss eru án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert