Margir sjá eftir að hafa gengið í Buffalo-skóm og MoonBoots-kuldaskóm. Það verður þó að viðurkennast að um klassíska hönnun er að ræða sem er komin aftur á tískuradarinn. Sumir skór eru hins vegar svo ljótir að þeir komast líklega aldrei inn á landakortið.
Rebel Royal er með instagramsíðuna Crimes Against Shoemanity þar sem hún birtir myndir af einstaklega ljótum skóm. Vogue segir hana lýsa sjálfri sér sem barni tíunda áratugarins sem kunni að meta skófatnað. „Þegar ég sé ljóta skó finnst mér eins það sé ráðist á mig persónulega,“ skrifar Royal.
Skópörin sem hún hefur fundið myndir af eru fjölmörg og hvert öðru ljótara. Erfitt er að reyna að velja ljótasta skóparið.